Færsluflokkur: Bloggar

Ari furðar sig á tilboði Rúv

Það er eins og þessi ágæti Ari gleymi því að Stöð 2 næst ekki um allt land, hluti dreifbýlisins er utan þeirra kapitalíska þjónustsvæðis.  Þegar Stöð 2 býður upp á þjónustu á mínu heimili, þá skal ég kaupa áskrift.  En á meðan útsending þeirra nær ekki til ca 5% þjóðarinnar, á meðan RÚV þjónustar a.m.k 99,5%- 99,9%,  þá getur Stöð 2 ekki talist hæf um að dreifa efni sem erindi til allrar þjóðarinnar.   Svo má deila um hvort HM flokkist undir það....

Sauðburður/reynslusaga

Hafið þið ágætu lesendur einhvern tímann velt því fyrir ykkur hvað það getur verið erfitt( eða leiðinlegt ) að vera sauðfjárbóndi.  Það er sem betur fer yfirleitt gaman, en stundum koma augnablik þar sem þú þarft að velja á milli, ( dýralæknir(rándýr), lamb eða móðir).  Í morgun þurfti ég t. d. að velja milli lambs eða móður, einungis annað átti séns.   Móðirin gat ekki borið, þrátt fyrir hjálp, enda var lambið komið hálfa leið út, en bara annar fóturinn, en samt allt fast!!.  Hvað gera bændur þá??

Ég hef trúlega hjálpað nokkur þúsund lömbum í heiminn hingað til, en samt var þetta sem betur fer í fyrst sinn sem ég varð að ganga svo hreint til verks að afhausa lambið, ýta því inn, sækja  hinn fótinn og bjarga móðirinni.  Lambið hefði hvort sem er aldrei getað lifað.  Það var enginn tími fyrir keisaraskurð í þessu tilviki!!!

Móðurinni farnast vel, hún biður að heilsa.

Það eru ekki alltaf jólin!!

Kv; Jón


Um bloggið

Jón Gíslason

Höfundur

Jón Gíslason
Jón Gíslason
Bóndi
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband